Fara í efni

Framfærsluviðmið

Lög um umboðsmann skuldara nr. 100/2010 kveða á um að umboðsmaður skuldara skuli útbúa framfærsluviðmið og uppfæra það reglulega. 

Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara eru fyrst og fremst ætluð sem viðmið þegar leitað er lausna á skuldavanda með úrræðum embættisins. Viðmiðin eru ætluð til styttri tíma en viðmið ýmissa annarra, til dæmis dæmigerð viðmið velferðarráðuneytisins. Viðmið embættisins taka mið af raunútgjöldum íslenskra heimila skv. útgjaldarannsókn Hagstofu Íslands um neysluútgjöld í slenskra heimila.

Umsækjendur þurfa sjálfir að tiltaka í umsókn sinni ýmsan kostnað við framfærslu, svo sem vegna hita, rafmagns, dagvistunar barna, fasteignagjalda og er þeim bætt við annan kostnað til að reikna út heildarframfærslukostnað fjölskyldunnar. Viðmiðin taka þannig tillit til aðstæðna hjá hverjum og einum umsækjanda.

Nánar má lesa um framfærsluviðmiðin á vefsíðu embættisins. Á vefsíðunni er einnig að finna reiknivél þar sem einstaklingar geta séð hver framfærslukostnaður fjölskyldunnar skv. grunnviðmiðunum ætti að vera og bætt við raunkostnaði sinnar fjölskyldu.