Fara í efni

Leitin að peningunum

Leitin að peningunum

Verkefninu var fyrst ýtt úr vör árið 2020 í kjölfar ábendinga umboðsmanns skuldara um vanda ungs fólks sem leitað hafði ráða hjá stofnuninni vegna skyndilána. Til að bregðast við þeirri aðkallandi stöðu var ákveðið að fara af stað með sérstakt fræðsluverkefni í samvinnu við félags- og barnamálaráðuneytið þar sem aðalmarkhópurinn yrði ungt fólk á aldrinum 18-25 ára.

Í kjölfarið voru gefnir út 52 hlaðvarpsþættir sem nutu mikilla vinsælda á hlaðvarpsveitum og var hlaðið niður um 250.000 sinnum á tæpu einu og hálfu ári.

Þættirnir og viðfangsefni þeirra voru auk þess reglulega til umfjöllunar í fjölmiðlum meðan á verkefninu stóð. Auk þess voru helstu ráðin úr hlaðvarpsþáttunum tekin saman í hljóðbókarkafla á árinu 2022 og hefur hlustun á þá sömuleiðis verið mikil.

Dæmi um hlaðvarpsþætti:

  • Þetta reddast er versta fjármálaráðið
  • Ef maður nær nógu mörgum litlum markmiðum þá nær maður á endanum stóra markmiðinu
  • Spurt og svarað um fjárfestingar
  • Sátt manneskja kaupir sér ekki neitt
  • Hagsýni við matarinnkaup og fjármál við skilnað
  • Allt það sem þú vildir vita um hagfræði

Í kjölfar aukinnar umræðu um skaðsemi skyndilána og fræðslu til ungs fólks um fjármál fækkaði umsóknum frá þeim hóp verulega.

Samningur um áframhald fræðsluverkefnisins Leitin að peningunum var undirritað í október 2022. Stærsti hópur allra umsækjenda um aðstoð vegna fjárhagsvanda hjá umboðsmanni skuldara á árinu 2022 voru öryrkjar. Stór hópur umsækjenda voru einnig einstaklingar í félagslega viðkvæmri stöðu. Markmiðið að reyna nú að ná til þessara hópa og miðla fræðslu með sérsniðnum upplýsingum um fjármál sem fólk getur speglað sig í. Leitað verður eftir samstarfi við hagsmunasamtök þeirra hópa sem framhaldsverkefnið snýr að.