Fara í efni

Megin þjónusta umboðsmanns skuldara snýr að því að veita einstaklingum endurgjalslausa aðstoð sérfræðinga við að leysa úr fjárhagsvanda. 

 

Helstu verkefni :

  • Ráðgjöf
  • Fyrirspurnir og símaráðgjöf
  • Fræðsla um fjármál heimilanna
  • Gerð framfærsluviðmiðs

Embættið fer einnig með framkvæmd tveggja lögbundinna úrræða:

  • Greiðsluaðlögun einstaklinga sbr. lög nr. 101/2010
  • Fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta, sbr. lög nr. 9/2014

Markmið embættisins er að veita ávallt sem besta þjónustu og er lögð áhersla á að leita stöðugt leiða til að bæta hana.

Embættið heldur úti öflugri símaráðgjöf þar sem hægt er að leita nánari upplýsinga um þá þjónustu sem stendur til boða og fá svör við einföldum spurningum og ráðleggingar um hvert sé hægt að leita eftir frekari svörum eða þjónustu.

Þá er einnig hægt að senda fyrirspurnir til embættisins með tölvupósti og fá skrifleg svör við einstaka fyrirspurnum. Þá er einnig hægt að óska eftir símtali á vefnum.

Umsóknarferli