Fara í efni

Mannauður

Hjá embættinu starfa einstaklingar með fjölbreytta menntun og mikla reynslu og er það markmið embættisins að leggja rækt við þá þekkingu sem myndast hefur.

Embættið leitast við að bjóða starfsfólki sínu upp á sveigjanlegan vinnutíma með það að markmiði að auðvelda starfsfólki að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs án þess þó að það komið niður á þjónustu þeirri sem embættið veitir.

Embættið hefur verið lánsamt í gegnum árin með gott starfsólk. Meirihluti starfsmanna hefur starfað frá stofnun embættisins og störfuðu jafnvel áður hjá fyrirrennara embættisins sem var Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna (meðalstarfsaldur tekur mið af því). Hjá embættinu hefur því orðið til mikil þekking á því sem varðar fjármál heimilanna.

Á árinu 2021 voru starfsmenn 17 í 16 stöðugildum.
Tveir starfsmenn voru í fæðingarorlofi stóran hluta árs.

Umboðsmaður skuldara styrkir starfsmenn sína til að sinna heilsu sinni og stunda líkamsrækt.

Starfsmenn embættisins árið 2021 voru með fjölbreytta menntun og mikla reynslu en meðal starfsaldur var 11 ár. Þar er meðtalin starfsaldur þeirra starfsmanna sem störfuðu áður hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.