Fara í efni

Embættið er fyrst og fremst þjónustustofnun þar sem einstaklingar geta fengið endurgjaldslausa aðstoð sérfræðinga við úrlausn á fjárhagsvanda.

Helstu verkefni :

  • Ráðgjöf
  • Fyrirspurnir og símaráðgjöf
  • Fræðsla um fjármál heimilanna
  • Gerð framfærsluviðmiðs

Embættið fer einnig með framkvæmd eftirfarandi úrræða:

  • Framkvæmd greiðsluaðlögunar, sbr. lög nr. 101/2010
  • Veita fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar, sbr. lög nr. 9/2014


Markmið embættisins er að veita ávallt sem besta þjónustu og er lögð áhersla á að leita stöðugt leiða til að bæta hana.

Embættið heldur úti öflugri símaráðgjöf þar sem hægt er að leita nánari upplýsinga um þá þjónustu sem stendur til boða og fá svör við einföldum spurningum og ráðleggingar um hvert sé hægt að leita eftir frekari svörum eða þjónustu.

Þá er einnig hægt að senda fyrirspurnir til embættisins með tölvupósti og fá skrifleg svör við einstaka fyrirspurnum. Þá er einnig hægt að óska eftir símtali á vefnum.

Umsóknarferli